Í þrjá áratugi hefur EES‑samningurinn verið kynntur sem lykillinn að innri markaði Evrópu, auknum viðskiptum og betri lífskjörum. Í dag blasir hins vegar við allt önnur mynd. Samningurinn hefur bundið Ísland við regluverk sem var aldrei samið fyrir land sem framleiðir nánast engin byggingarefni, rekur smátt fjármálakerfi og er sjálfbært í orku.