Trine Erdal héraðssaksóknari krefst tólf ára fangelsisrefsingar yfir fertugum manni fyrir framleiðslu á 74 kílógrömmum af amfetamíni á afskekktum sveitabæ í Modum í Buskerud-fylki vestan Óslóar. Verjandi fullyrðir að lögregla hafi gengið í svokallaða staðfestingargildru og ætli sér bara að ná fram sakfellingu, sama hvað.