Hörður Torfason mætti með gítarinn í Rokkland og talaði um líf sitt milli laga.Hann hefur ekki veigrað sér við að taka hinar ýmsu baráttur, hvort sem það er í hinsegin málefnum eða í efnahagshruninu. Reyndar segir hann pólitík ekki koma málinu við, hann sé fyrst og fremst leikstjóri, líka þegar hann var í forystu í búsáhaldabyltingunni.„Það voru þúsundir manna plataðir og settir í fjárhagsgildrur. Ég hugsaði að það þyrfti að hjálpa þessu fólki. Þá kom fram leikstjórinn – hver er munurinn á að setja upp leikrit í Þjóðleikhúsinu og á Austurvelli? Þetta er nákvæmlega það sama, það er leikstjórinn,“ segir Hörður í Rokklandi. Á AUSTURVELLI Í FIMM MÁNUÐI Hann stóð í viku við styttuna af Jóni Sigurðssyni og spjallaði við fólk þar sem hann fann mikla reiði og fyrirlitningu. Hann vildi hjálpa og