Reikningar sem sjúkraþjálfari sendi Sjúkratryggingum báru þess skýr merki að hann hefði ætlað að blekkja starfsmenn stofnunarinnar til að fá greiðslur sem hann átti ekki rétt á. Þetta er niðurstaða dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur sem dæmdi sjúkraþjálfarann í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi.Maðurinn var ákærður fyrir að senda inn 577 tilhæfulausa reikningaSjúkraþjálfarinn byrjaði að veita fólki meðferð áður en hann fékk leyfi hjá Reykjavíkurborg til að vera með sjúkraþjálfun í húsnæðinu þar sem hann starfaði og áður en hann fékk samning við Sjúkratryggingar. Maðurinn sagðist hafa sent inn reikninga vegna meðferða sem hann hefði veitt fólki áður en samningurinn tók gildi.Þetta sagðist hann hafa talið að væri í lagi og ekki komist að því fyrr en eftir á að væri stærra mál en hann taldi. Þ