Flugvirkjafélag Íslands, FVFÍ, og Icelandair hafa komist að samkomulagi um að félagið aflýsi yfirstandandi verkfalli. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu aðila. Þar segir að ákvörðunin hafi verið tekin til að forða frekara tjóni fyrir fyrirtækið, viðskiptavini, starfsfólk og aðra hagsmunaaðila. Aðilar hafa jafnframt samið um að verja næstu fjórum vikum í markvissar viðræður samkvæmt verkstýrðri viðræðuáætlun ríkissáttasemjara. Markmiðið sé...