Steve Witkoff, einn helsti erindreki Bandaríkjaforseta, og Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, hittust á fundi í New York í gær þar sem fulltrúar frá Katar miðluðu málum. Þetta er fyrsti fundur fulltrúa ríkjanna frá því að viljayfirlýsing um frið frá því í júní fór út um þúfur.Nokkrum klukkustundum áður sagðist Donald Trump Bandaríkjaforseti í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna geta gereytt íslamska lýðveldinu ef samningar næðust ekki.Það virðist ekki mikið nýtt hafa komið fram á fundi Írans og Bandaríkjanna í gær. Witkoff sagðist vona að viðræðurnar reynist uppbyggilegar og talsmaður Írans sagðist hafa ítrekað kröfur um að Bandaríkin láti af árásum.Það eru nærri sjö mánuðir liðnir frá því að Bandaríkin og Ísrael hófu stríð gegn Íran og þótt ekki sé allsherjarstríð enn í