Samfylkingin áfram stærst

Samfylkingin nýtur áfram mests fylgis samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu sem Vísir greinir frá. 27,5 prósent segjast myndu kjósa flokkinn ef kosið væri nú. Fylgi flokksins eykst um 1,3 prósent frá síðustu könnun.Fylgi Flokks fólksins minnkar um 1,0 prósent milli kannana og mælist nú minna en svo að flokkurinn væri öruggur um að ná inn á þing, 4,3 prósent.Aðrir flokkar standa nokkurn veginn í stað með fylgisbreytingar upp á innan við hálft prósent.Sjálfstæðisflokkurinn er sem fyrr næststærstur með 25,0 prósenta fylgi. Því næst koma Miðflokkurinn og Viðreisn. Framsóknarflokkurinn kemur næstur, nokkuð sér á parti, þægilega yfir fimm prósenta mörkunum sem ráða því hvort flokkar fái uppbótarsæti eða ekki.Aðrir flokkar mælast utan þings. Það eru Vinstri græn, Flokkur fólksins, Píratar og Sósía
Samfylkingin áfram stærst

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd