Stofnendur Læsis hafa nú breytt stillingum í forritinu þannig að foreldrar geta falið hvatningu. Málfríður Bjarnadóttir, einn stofnandi Læsis-smáforritsins, sem hefur verið í umræðu síðustu daga, segir umræðuna hafa tekið á. Hún hafi, ásamt öðrum stofnendum, búið forritið til því hún brenni fyrir skólaþróun. Þau hafi unnið að forritinu á kvöldin og um helgar, meðfram fullu starfi.