Frá því í mars hefur íbúðum í byggingu fækkað um 11% og hátt í 1.900 nýjar íbúðir eru tilbúnar en óseldar – 85% fleiri en þær voru fyrir ári síðan.Þetta kemur fram í nýrri greiningu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, HMS, sem kynnt var þriðjudaginn 22. september. Skýrslan var kynnt á fundi og er hægt að horfa á upptöku á vef HMS.„Ef maður horfir á þau verkefni sem eru í startholunum þá fáum við einhverja mynd af markaðnum eins og hann verður eftir nokkur ár og þar sjáum við viðvörunarmerki,“ segir Jónas Már Gunnarsson yfirhagfræðingur HMS. Þá safnist óseldar íbúðir upp og margar hafi verið til sölu í meira en eitt ár.„Þarna held ég að skipti hvernig þessar íbúðir eru og hvort þær hafi verið byggðar fyrir þann markað sem er til staðar.“HMS telur allar íbúðir í byggingu tvisvar á