Írland spilar sinn fyrsta leik í Þjóðadeildinni á morgun, gegn Kósovó. Leikurinn gegn Ísrael hefur þó algjörlega stolið sviðsljósinu eða kannski frekar sú staðreynd að Írland sé að fara að spila gegn Ísrael. Ummæli Heimis Hallgrímssonar, landsliðsþjálfara Írlands, á fréttamannafundi nýlega reittu ísraelska fótboltasambandið til reiði en þar sagði hann Íra vera að fara að spila 'gegn þjóðarmorði'. Heimir var á fréttamannafundi í morgun og sagði að það hefði líklega ekki verið sniðugt hjá sér að draga athyglina svona frá leiknum gegn Kósovó og að sér.