Hellirigning eða stormur á stórum hluta landsins

Veðurstofan hefur gefið út sex gular viðvaranir á fimm spásvæðum á morgun. Útlit er fyrir mikla rigningu á Austfjörðum og Suðausturlandi. Varað er við norðaustanstormi á Vestfjörðum, Suðausturlandi og miðhálendinu.Búist er við 18 til 25 metrum á sekúndu í austanstormi og að vindur fari yfir 35 metra á sekúndu í hviðum þar sem hamagangurinn verður mestur.Veðurspáin í dag og á morgun er svohljóðandi:Suðvestan 5-13 metrar á sekúndu og skúrir í dag, en lengst af þurrt og bjart á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 7 til 13 stig, mildast fyrir austan. Austan og norðaustan 13-20 m/s og rigning á morgun, en 18-25 sunnanlands fram yfir hádegi. Talsverð úrkoma á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti 5 til 11 stig. Dregur úr vindi síðdegis, en norðaustan hvassviðri eða stormur á Vestfjörðum.
Hellirigning eða stormur á stórum hluta landsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd