Ríkisstjórnin fundaði í morgun og þing fundar eftir hádegi

Ríkisstjórnarfundur var haldinn í morgun. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var hann afar stuttur. Fréttastofa hefur ekki fengið upplýsingar um hvert fundarefnið var. Fréttastofa hefur jafnframt heimildir fyrir því að boðað verði til þingfundar eftir hádegi. Þar verði eitt mál á dagskrá, lög á verkfall flugvirkja.Óvenjulegt er að ríkisstjórnarfundir séu haldnir á miðvikudegi. Þeir eru alla jafna haldnir þriðjudaga og föstudaga. Vangaveltur hafa verið um hvort stjórnvöld grípi til aðgerða vegna verkfalls flugvirkja, svo sem með því að setja lög á verkfallið. Því kann að vera að verkfallið, sem hófst á miðnætti, hafi verið til umræðu á fundinum í morgun en það er ekki staðfest.
Ríkisstjórnin fundaði í morgun og þing fundar eftir hádegi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd