Hver sat við borðið?

Samráð er fallegt orð sem er mikið notað um þessar mundir en hvað þýðir það að viðhafa raunverulegt samráð? Samkvæmt lögum er skylda að hafa samráð við fatlað fólk þegar fjallað er um þeirra málefni. Í því samhengi er ekki nóg að spyrja fatlað fólk hvað því finnist þegar tillögur um þeirra réttindi eru nánast tilbúnar, en slík vinnubrögð eru því miður allt of algeng. Til þess að samráð skili árangri þarf fatlað fólk að geta haft áhrif á það sem verið er að móta en ekki eingöngu fengið að gera athugasemdir við niðurstöðuna.
Hver sat við borðið?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd