Fjármálastöðugleikanefnd segir brýnt að fyrirtæki á fjármálamarkaði efli varnir sínar í takt við það hvernig netógnir þróast. Nefndin nefnir sérstaklega að með framþróun gervigreindar geti hraði, umfang og flækjustig netárása aukist. Því sé mikilvægt að styrkja viðnámsþrótt og samhæfa viðbúnað innan fjármálakerfisins við alvarlegum rekstraratvikum.Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans sem var birt í dag. Nefndin segir að fjármálakerfið sé traust og vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum. Kerfislega mikilvægir bankar eru sterkir og aðgengi þeirra að fjármögnun á markaði er gott.Viðsjár eru á fjármálamörkuðum heimsins.„Alþjóðlegar verðbólguhorfur hafa versnað og seðlabankar helstu iðnríkja hafa hækkað vexti. Áhyggjur af sjálfbærni