Í síðustu mælingu Landmælinga á hæð hæsta tinds Íslands, Hvannadalshnjúks, frá árinu 2005 mældist hann 2.109,6 metrar á hæð yfir sjávarmáli en ekki 2.119 metrar eins og hann mældist fyrir rúmum 100 árum. Á korti Loftmynda ehf. er Hvannadalshnjúkur hins vegar skráður 2.108 metrar á hæð yfir sjávarmáli.