Sendlar sem keyra út matarsendingar fyrir Wolt hafa í einhverjum tilfellum fengið greitt fyrir vinnu sína í gegnum einkahlutafélög. Fréttastofa hefur undir höndum gögn sem sýna fram á þetta.Maðurinn sem átti einkahlutafélagið sem gögnin fjalla um notaði félagið eingöngu til að fá greitt frá Wolt. Félag mannsins var stofnað 2023 en varð gjaldþrota 2025.Einn ársreikningur liggur fyrir og er hann fyrir 2023. Þá var félagið með fjögurra milljóna króna rekstrartekjur, allt vegna sendlavinnu fyrir Wolt samkvæmt því sem eigandinn segir sjálfur. Í gögnunum kemur jafnframt fram að fleiri en einn sendill hafi fengið greitt fyrir vinnu sína hjá Wolt í gegnum einkahlutafélag mannsins.Mikil umræða hefur verið um heimsendingarfyrirtækið Wolt síðustu vikuna eftir að sendlar sem keyra út fyrir fyrirtækið