Ferðaþjónustan hefur verið einn helsti drifkraftur farsældar Íslendinga síðasta áratuginn. Hún skilar meiri gjaldeyristekjum til landsins en nokkur önnur atvinnugrein og beinar skatttekjur ríkis og sveitarfélaga af greininni hafa síðustu ár numið meira en 200 milljörðum króna á ári. Það er álíka fjárhæð og áætlaður heildarkostnaður við nýjan Landspítala.