Lönd Evrópusambandsins hafa náð samkomulagi um að rússnesku ólígarkarnir Alisher Usmanov og Mikhail Friedman verði teknir af lista Evrópusambandsins yfir einstaklinga og stofnanir sem sæta efnahagsþvingunum Evrópusambandsins vegna innrásar Rússa í Úkraínu.Yfir 3.000 einstaklingar og fyrirtæki á listanum sæta frystingu eigna og takmörkunum á ferðafrelsi.Andriy Sybiga, utanríkisráðherra Úkraínu, segir ákvörðun ESB „skammarlega og óverjandi.“ Hann sagði að nú væri fagnað í Moskvu því þetta væri það sem stjórnvöld vilji þar, refsileysi, niðurlægingu ESB og sundrung meðal Evrópuþjóða. DRÓGU NEITUNARVALD SITT TIL BAKA Stjórnvöld í Lettlandi beittu neitunarvaldi gegn því að óligarkarnir tveir yrðu teknir af listanum. Því var tvísýnt um tíma í gær hvort samkomulag myndi nást í tæka tíð áður en