Icelandair hefur aflýst öllum brottförum frá Keflavík og Reykjavík í fyrramálið vegna verkfalls flugvirkja sem hófst á miðnætti.Um er ræða að 26 flugferðir frá Keflavík til Evrópu og til baka og fimm flugferðir innanlands frá Reykjavík og til baka. Samtals hefur þessi aðgerð áhrif á hátt í 5.500 farþega. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem send var á fjölmiðla.Félagið vinnur nú hörðum höndum að því að endurbóka farþega og hvetur fólk að fylgjast vel með og tryggja að samskiptaupplýsingar séu réttar.İ kjölfarið verða ákvarðanir teknar skref fyrir skref eftir því sem fram vindur, en alltaf með nægilegum fyrirvara þannig að farþegum sé ekki stefnt út á flugvöll að tilefnislausu, það er með að minnsta kosti 4-6 klst fyrirvara.Aõ sama skapi verður tímabil sveigjanlegra endurbókana uppfært