Mikill rígur hefur myndast á milli KR og Víkings í Bestu deild karla í fótbolta í ár. Hefur hann ekki síður verið utan vallar þar sem leikmenn og jafnvel þjálfarar eru duglegir að skjóta hver á annan. Þá skipta viðureignir þessara liða miklu máli fyrir stuðningsmenn.