Lögreglan í Vestmannaeyjum biðlar til foreldra að ræða við börn sín um hættuna sem fylgi því að losa festingar á framhjóli reiðhjóla. Nokkrar tilkynningar um slíkt athæfi á hjólum grunnskólabarna hafi borist lögreglunni.Þá biður lögreglan foreldra einnig að brýna fyrir börnum sem fara um á reiðhjólum að kanna festingar áður en hjólað er af stað.Allar tilkynningarnar sem lögreglu bárust áttu sér stað við skólalóð í Vestmannaeyjabæ, að því er segir í færslu lögreglunnar á Facebook.