Ungur drengur á Patreksfirði tvíbrotnaði á höfuðkúpu og hlaut tvær innvortis blæðingar eftir að hafa fallið á rafmagnshlaupahjóli á laugardag. Stjúpmóðir hans þakkar fyrir það að hann hafi verið með hjálm og biðlar til foreldra, og raunar samfélagsins alls, að brýna fyrir börnum að nota hjálm.