Bandaríski „looksmaxxing“-áhrifavaldurinn Braden Peters, sem kallar sig Clavicular, er ákærður fyrir að nauðga stúlku undir lögaldri, gefa henni áfengi og byrla henni ólyfjan í kynferðislegum tilgangi.Samkvæmt ákærunni áttu meint brot sér stað í maí í fyrra.Peters neitar sök. Talsmaður hans sagði við CBS News að ákærurnar væru „rugl“. Stúlkan, sem nú er 18 ára, höfðaði einkamál gegn Peters fyrr á árinu. Hún segir hann hafa gefið sér nokkra staupa af vodka og haft samræði við hana án samþykkis á heimili foreldra hans í Cape Cod í Massachusetts.Stúlkan segist hafa verið ólögráða þegar Peters, sem er tvítugur, á að hafa brotið á henni. Hún sakar hann einnig um að hafa sprautað sig í andlitið með einhvers konar ólöglegu efni sem eigi að leysa upp fitu. BER SIG Í ANDLITIÐ MEÐ HAMRI Þetta er