Ríkisstjórnin vill setja hraðari rafvæðingu bílaflotans í forgang til að draga úr losun. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir að bílaleigur ráði hvort þær verði í fararbroddi orkuskipta á Íslandi eða dragbítur. Bílaleigur hafi hingað til keypt hlutfallslega miklu færri rafmagnsbíla en almenningur. Eru bílaleigur að draga lappirnar eða ættu stjórnvöld að líta sér nær?Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds-Bílaleigu Akureyrar, og Jón Ásgeir Haukdal Þorvaldsson, teymisstjóri hjá Umhverfis- og orkustofnun, voru gestir Kastljóss í kvöld.Forstjóri Bílaleigu Akureyrar segir bílaleigur ekki standa í vegi fyrir rafvæðingu bílaflotans heldur ferðamenn sem vilji ekki rafbíla. Teymisstjóri hjá Umhverfis- og orkustofnun segir enga tæknilega fyrirstöðu fyrir rafvæðingu b