Tré ársins 2026 var útnefnt við hátíðlega athöfn í dag á Mógilsá undir Esjuhlíðum. Tré ársins er rúmlega 15 metra hátt asktré tileinkað Haraldi V. Noregskonungi sem lést nýlega.Haraldur var krónprins þegar hann gróðursetti tréð árið 1967 þegar bygging Rannsóknarstöðvar skógræktar á Mógilsá var vígð en stöðin var á þeim tíma gjöf Norðmanna til Íslendinga.Fulltrúi norska sendiherrans á Íslandi afhjúpaði skilti um tréð en auk þess var tréð mælt og vegið.