Barn stakk sig á sprautunál á skólalóð

Nemandi í Laugarnesskóla stakk sig á sprautunál á lóð skólans. Þetta kemur fram í tölvupósti til aðstandenda barna í skólanum. Þar segir að brugðist hafi verið við málinu tafarlaust „í samræmi við öryggisferla skólans“. Aðstandendur nemenda í skólanum eru beðnir um að ræða við börnin sín vegna málsins. „Brýna þarf fyrir börnunum að ef þau finna nál á skólalóðinni eða annars staðar eiga þau alls ekki að snerta hana heldur láta starfsfólk skólans eða fullorðna vita strax svo hægt sé að fjarlægja hana á öruggan hátt,“ segir í póstinum.
Barn stakk sig á sprautunál á skólalóð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd