Verkfall hefst að óbreyttu á miðnætti: Flugmenn og flugfreyjur lýsa yfir stuðningi við flugvirkja

Enn ber talsvert í milli í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair og engir fundir hafa verið boðaðir. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um inngrip stjórnvalda. Að óbreyttu stefnir í að ótímabundið verkfall flugvirkja hefjist á miðnætti. ÞREIFINGAR Í DAG EN ENGIN NIÐURSTAÐA Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari, segist í samtali við fréttastofu hafa hvorki séð ástæðu til að boða til fundar í dag né veita viðtal. Hann hafi ekkert að segja um stöðuna nema það að enginn samningsgrundvöllur sé í augnsýn.Fulltrúar samningsaðila vildu ekki veita fréttastofu viðtal í dag. Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, staðfesti þó að þreifingar hafi átt sér stað í dag, en engin niðurstaða.Öllum flugferðum Icelandair sem eiga að fara í fyrramálið, bæði innanlands og millilanda, ve
Verkfall hefst að óbreyttu á miðnætti: Flugmenn og flugfreyjur lýsa yfir stuðningi við flugvirkja

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd