Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu réðst í samhæfðar aðgerðir í morgun og handtók nokkurn fjölda fólks – að minnsta kosti um tíu manns – vegna rannsóknar á stórfelldu fíkniefnalagabroti, dreifingu og sölu á fíkniefnum og peningaþvætti. Þetta herma heimildir fréttastofu.Lögregla hefur ekki svarað fyrirspurnum um málið í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru nokkrir þekktir brotamenn á meðal hinna handteknu, meðal annarra Atli Freyr Fjölnisson, sem situr í varðhaldi vegna aðildar að smygli á 106 kílóum af kókaíni með súrálsskipi í Straumsvíkurhöfn í sumar. Hann var handtekinn inni á Litla-Hrauni.Einhverjum hinna handteknu hefur þegar verið sleppt, en samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að fara fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum í kvöld.Um tugur manna var handtekinn vegna rannsóknar á