Hörður Lilliendahl, varðstjóri í umferðadeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir lögreglu gera sitt besta til að sporna við hraðaakstri. Ungt fólk og umferðin er yfirskrift umferðarþings Samgöngustofu sem fram fór í dag. Sérfræðingar frá lögreglu, Samgöngustofu og Háskóla Íslands ræddu þar hvernig stuðla mætti að ábyrgri þátttöku ungmenna í umferðinni.Mikil umræða hefur verið um hraðaakstur ungmenna eftir að fjögur ungmenni létust í tveimur slysum á þessu ári. „Við fáum náttúrulega tilkynningar um að krakkarnir séu að hittast á einhverjum ákveðnum stöðum og jafnvel að spyrna,“ segir Hörður.„Þá reynum við að bregðast við og látum sjá okkur á svæðinu og þá náttúrulega erum við búin að eyðileggja þennan stað. En þá færa þau sig náttúrulega á einhvern annan stað og við getum ekki haldið