Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðug­leika hag­kerfisins

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) sýnir að hraður vöxtur í tækni- og hugverkaiðnaði hefur ekki aðeins skapað mikil útflutningsverðmæti heldur jafnframt stuðlað að auknum stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Greinin er orðin ein af fjórum meginstoðum útflutnings á Íslandi og stóð árið 2025 undir nær fimmtungi útflutningstekna þjóðarbúsins. Ávinningurinn nær því langt út fyrir fyrirtækin sjálf: sterkari tækni- og hugverkaiðnaður eflir undirstöður hagkerfisins og skapar forsendur fyrir betri lífskjörum landsmanna.
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðug­leika hag­kerfisins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd