Ólafur Darri og Ebba Katrín verðlaunuð á nýrri hátíð

Leikararnir Ólafur Darri Ólafsson og Ebba Katrín Finnsdóttir verða verðlaunuð á Norrænu kvikmynda- og sjónvarpsverðlaununum í Helsinki í dag.Þetta er í fyrsta skipti sem svokölluð Freyjuverðlaun verða afhent.Í frétt Variety um verðlaunin segir að Ólafur Darri verði verðlaunaður fyrir framúrskarandi leik í þáttaröðinni Reykjavík Fusion.Variety nefnir leik Ebbu Katrínar í Húsó, Vigdísi, Reykjavík 112, Dönsku konunni og Hildi. Hún fékk Grímuverðlaunin sem leikkona ársins árið 2020.Meðal annarra sem verða verðlaunaðir á hátíðinni er danska leikkonan Trine Dyrholm. Hún er tilnefnd fyrir hlutverk sitt sem Ditte Jensen í Dönsku konunni.Þá verður sænski leikstjórinn Lasse Hallström verðlaunaður og samlandi hans, leikkonan Lena Olin.Auk þeirra hljóta sænski leikarinn Fares Fares, norska leikkonan T
Ólafur Darri og Ebba Katrín verðlaunuð á nýrri hátíð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd