Fyrstu niðurstöður nýs áhættumats fyrir Grindavík hafa verið birtar. Miðað við þær eru forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík ásættanlegar að því gefnu að gerðar séu nauðsynlegar öryggisráðstafanir.Forsætisráðuneytið og Grindavíkurbær boða til opins fundar í Gjánni í Grindavík klukkan átta í kvöld þar sem niðurstöðurnar verða kynntar íbúum.Í tilkynningu frá stjórnarráðinu segir að niðurstöðurnar skapi grundvöll fyrir næstu skref við endurreisn Grindavíkur, meðal annars með því að hefja undirbúning að því að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur íbúðarhúsnæði í bænum. SAMBÆRILEGT ÖÐRUM BYGGÐARLÖGUM SEM BÚA VIÐ NÁTTÚRUVÁ Í apríl var það mat Grindavíkurnefndar að ekki væru forsendur til að hefja skólahald að nýju í Grindavík. Það mat féll aftur á móti ekki í góðan jarðveg