Trump kallar eftir því að ríki segi skilið við Alþjóðlega sakamáladómstólinn

Donald Trump forseti Bandaríkjanna fór um víðan völl í ræðu sinni á fundi í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Meðal umræðuefna hans var ákall til þeirra þjóða sem eiga aðild að Alþjóðlega sakamáladómstólnum (ICC) um að segja skilið við dómstólinn.Trump segir Bandaríkin andsnúin „þeirri stjórnlausu stofnun sem kallast Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn.“ Þá hét Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna því að leggja dómstólinn kerfisbundið niður. Hann sé óþolandi ógn við fullveldi Bandaríkjanna. Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn tók til starfa í hollensku borginni Haag árið 2002 í kjölfar þess að 60 ríki höfðu fullgilt Rómarsamþykktina svonefndu.Dómstóllinn dæmir á alþjóðlegum grundvelli í málum einstaklinga sem framið hafa alvarlega glæpi á borð vi
Trump kallar eftir því að ríki segi skilið við Alþjóðlega sakamáladómstólinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd