Segir ummæli Guðmundar Inga ekki svara verð

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir ummæli Guðmundar Inga Kristjánssonar, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, í síðustu viku ekki svara verð.Guðmundur Ingi sagði af sér sem ráðherra í vetur og sagði sig úr Flokki fólksins. Hann greindi frá ástæðum afsagnar sinnar í viðtali við fréttastofu í síðustu viku og sagði Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, hafa krafist afsagnar hans á sjúkrabeði.Honum hefði blöskrað þegar aðstoðarkona hans sendi honum texta í kjölfarið um hvernig hann ætti að segja af sér eftir samtal við aðstoðarmann Ingu.Aðstoðarkona hans var Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, eiginkona Ragnars Þórs. Hann kom inn í ríkisstjórnina eftir að Guðmundur Ingi lét af embætti og tók við þáverandi ráðuneyti Ingu Sæland, sem tók við ráðuneyti Guðmundar Inga.
Segir ummæli Guðmundar Inga ekki svara verð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd