Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., segist munu stefna íslenska ríkinu fyrir dómstóla verði hvalveiðibanni komið á. Frumvarp þess efnis verður lagt fram í febrúar á næsta ári.„Þetta mun kosta þau mikla peninga og þessum ráðherrum er sama því þeir þurfa ekki sjálfir að borga. Þeir senda þetta allt til skattgreiðenda,“ hefur AFP eftir Kristjáni. Hann hefur ekki svarað viðtalsbeiðnum fréttastofu í vikunni. TELUR ÓLÍKLEGT AÐ HVALVEIÐIBANN VERÐI SAMÞYKKT Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra stefnir að því að leggja fram frumvarp um breytingar á hvalveiðilögum í byrjun næsta árs. Hún hefur verið opinská um að hún telji lög um hvalveiðar barn síns tíma og að tími sé kominn á að taka þau til gagngerrar endurskoðunar. Hún stefnir að því að banna hvalveiðar alfarið.Kristán segist þó e