Geta ekki tekið inn börn sökum manneklu

Fjölskylduráð Múlaþings ákvað á dögunum að hækka heimgreiðslur til foreldra úr 52.153 krónur á mánuði í 104.500 krónur. Þetta er gert til þess að mæta manneklu í leikskólum og þeirri stöðu að ekki sé hægt að bjóða öllum 12 mánaða börnum leikskólapláss, þrátt fyrir að rýmið sé til staðar. Það vantar starfsfólk.„Það hefur bara haft þau áhrif að við höfum ekki getað tekið inn börn í aðlögun eins og við höfum viljað og það hefur svolítið strandað á því að við höfum úthlutað plássum sem við getum síðan ekki farið af stað með því við höfum ekki starfsmenn í það,“ segir Jónína Brynjólfsdóttir, formaður fjölskyludráðs í Múlaþingi. VANTAR LÍKA DAGFORELDRA Ráðið ákvað í vikunni að auglýsa eftir dagforeldrum og hækka heimgreiðslur til foreldra sem eru heima með börn eftir 12 mánaða aldur.Lítið hef
Geta ekki tekið inn börn sökum manneklu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd