Landskjörstjórn hefur tilkynnt um endanlega niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið sem haldin var 29. ágúst.Þetta gerði hún á fundi í Eddu, húsi íslenskunnar, fyrr í dag.Lokaniðurstöður eru að 105.338, eða 47,2%, greiddu atkvæði með en 118.047, eða 52,8%, á móti.Auðir og ógildir seðlar voru 1.646 eða 0,7%. Kjörsókn var 82,6%.Landskjörstjórn sneri við úrskurðum yfirkjörstjórnar Suðvesturkjördæmis um gildi átta ágreiningsatkvæða.Eitt atkvæði sem hafði verið úrskurðað sem já var fellt úr gildi. Sjö atkvæði til viðbótar sem höfðu verið úrskurðuð ógild voru úrskurðuð gild nei.