Prentmet Oddi tilkynnti í dag um að þeir hefðu tekið yfir rekstur Héraðsprents á Egilsstöðum. Héraðsprent var stofnað árið 1972 og hefur því verið starfandi í rúmlega hálfa öld.Héraðsprent hefur meðal annars annast útgáfu Dagskrárinnar á Austurlandi sem er mörgum íbúum kær. Í samtali við fréttastofu sagði Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir, stjórnarformaður Prentmets Odda, að þau myndu halda áfram allri útgáfu Héraðsprents eins og hægt væri.„Við ætlum að halda öllu áfram. Nú erum við komin með starfsemi allan hringinn í kringum landið með sterkar höfuðstöðvar í Reykjavík,“ sagði Ingibjörg.Í fréttatilkynningu Prentmets Odda segir:„ Með yfirtöku Prentmet Odda á félaginu skapast rekstrargrundvöllur til að halda úti starfsemi á Austurlandi og þjónusta vel þennan landshluta. Saga Héraðsprents hó