Búast við að aflýsa öllu morgunflugi í kvöld

Um eitt þúsund farþegar Icelandair sem eiga að fljúga frá Bandaríkjunum til Evrópu í kvöld, með millilendingu á Íslandi, verða endurbókaðir í flug með öðrum flugfélögum síðar í dag, eftir því sem pláss leyfir. Þetta verða fyrstu aðgerðir Icelandair til að bregðast við yfirvofandi verkfalli flugvirkja – ef undan er skilið að flugfélagið bauð farþegum sem áttu að fljúga á morgun og hinn að breyta flugi sínu. Verkfallið hefst á miðnætti ef ekki semst fyrir þann tíma.Icelandair flýgur að jafnaði um 110 ferðir á sólarhring, þar af 20 innalands, með um 15 þúsund farþega.Icelandair hefur sett upp áætlun um viðbrögð við verkfalli, samkvæmt svari við fyrirspurn fréttastofu.Til stendur að ákveða í kvöld að aflýsa öllum flugferðum í fyrramálið svo farþegar viti hvers er að vænta. Þetta verður gert í
Búast við að aflýsa öllu morgunflugi í kvöld

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd