Nýtt varnarsamkomulag á milli Danmerkur, Grænlands og Bandaríkjanna verður undirritað í dag þegar Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur og Jens-Frederik Nielsen, formaður Naalakkersuisut, heimastjórnar Grænlands, hitta Donald Trump forseta Bandaríkjanna í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York.Ýmsar getgátur hafa verið uppi um það hvaða breytingar verði gerðar á fyrirliggjandi samningi landanna en nákvæmt innihald nýja samningsins er enn þá á huldu. Núgildandi samningur var fyrst undirritaður árið 1951 og uppfærður árið 2004 með Grænland sem sjálfstæðan aðila að samningnum. Danska ríkisútvarpið (DR) hefur tekið saman þrjú mikilvægustu ákvæði þess samnings. 1. BANDARÍKIN OG DANMÖRK DEILA ÁBYRGÐ Á ÖRYGGI GRÆNLANDS Bandaríkin og Danmörk skuldbinda sig til að sameinast um varnir G