Héraðsstjórn Bresku Kólumbíu í Kanada hefur höfðað mál gegn gervigreindarfyrirtækinu OpenAI vegna meintrar vanrækslu fyrirtækisins á að láta yfirvöld vita af grunsamlegri virkni í samskiptum notanda við mállíkanið ChatGPT áður en hann varð átta manns að bana í skotárás í Tumbler Ridge í febrúar.