Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynnti í morgun losun Íslands á gróðurhúsalofttegundum í fyrra og fór yfir stöðu loftslagsaðgerða og forgangsverkefni í málaflokknum. Heildarlosun í fyrra var 10,6 milljónir tonna af CO2 ígildum og dróst saman um 3,9 prósent milli ára. VONBRIGÐI EN SAMT GÓÐAR FRÉTTIR Jóhann Páll sagði í upphafi fundar að illa hefði gengið að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda undanfarin ár.„Þetta eru vonbrigði,“ sagði hann í hádegisfréttum RÚV. „Góðu fréttirnar eru þær að það er vissulega smávægilegur heildarsamdráttur en þetta er að gerast alltof hægt.“Hann segir að ná verði meiri árangri hraðar. Þetta hafi legið fyrir þegar hann kom í ráðuneytið og síðan hefðu verið mótuð forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar sem unnið hafi verið að.„Áran