Íbúðum í byggingu hefur fækkað á sama tíma og nýjum óseldum íbúðum hefur fjölgað. Nýjar framkvæmdir á milli íbúðatalninga HMS hafa aldrei verið færri og ekki hafa færri íbúðir verið á fyrri framvindustigum. Horfur um íbúðauppbyggingu árin 2027 og 2028 hafa versnað frá því í mars.