Íbúðum í byggingu fækkar og horfur um framhaldið versna

Mjög hefur dregið úr uppbyggingu nýs húsnæðis síðustu mánuði. Íbúðum í byggingu hefur fækkað um 11 prósent á landinu öllu á hálfu ári. Mestur er samdrátturinn þegar litið er til framkvæmda sem hafa hafist síðustu mánuði, nýframkvæmdum hefur fækkað um 56%.Þetta er meðal niðurstaðna í talningu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar á íbúðum í byggingu.Á sama tíma hefur nýjum óseldum íbúðum fjölgað um 85 prósent á hálfu ári.Samkvæmt talningu HMS eru 6.216 íbúðir í byggingu á landinu öllu. Því til viðbótar eru 1.855 fullbúnar íbúðir sem er ekki búið að taka í notkun. Íbúðum sem er verið að byggja hefur fækkað um 772 á sex mánuðum. Samdrátturinn er þó minni ef miðað er við talningu fyrir ári síðan en samt nokkur, nánar tiltekið fimm prósent.Tíðindin í nýju tölunum eru ekki aðeins þau að f
Íbúðum í byggingu fækkar og horfur um framhaldið versna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd