Engin ákvörðun um að setja lög á verkfall flugvirkja

Verkfall flugvirkja Icelandair hefst að óbreyttu á miðnætti í kvöld. Öllum flugferðum félagsins verður aflýst komi til verkfalls. Lítið sem ekkert hefur þokast í samningaviðræðum. Engir fundir hafa verið boðaðir að sögn ríkissáttasemjara en óformleg samtöl hafa verið í gangi.Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra sagði á Alþingi í gær að verkfall myndi hafa víðtæk áhrif á íslenskt atvinnulíf og ferðafrelsi þjóðarinnar. Staðan var rædd á ríkisstjórnarfundi í morgun og á fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að ríkisstjórnin fylgist grannt með þróun mála.„Mér líst ekki nógu vel á stöðuna en ég vonast til þess að samningsaðilar noti daginn vel og nái saman,“ segir Eyjólfur.Hann segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um að setja lög á verkfa
Engin ákvörðun um að setja lög á verkfall flugvirkja

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd