Forstjóri ríkisútvarps Spánar (RVTE) leggur það til að miðillinn sniðgangi Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2027. Spánn var eitt fimm landa sem kaus að sniðganga keppnina sem haldin var í Austurríki í ár vegna þátttöku Ísraels. Hin löndin fjögur voru Ísland, Holland, Írland og Slóvenía.Forstjórinn, Jose Pablo Lopez, kallar viðvarandi þáttöku Ísraels í söngvakeppninni „verulega sársaukafulla“ í ljósi ástandsins á Gaza. YFIRGENGILEGT MANNFALL Írland og Holland hafa þegar tilkynnt að þau hyggist einnig sniðganga keppnina sem haldin verður á næsta ári í Búlgaríu. Í tilkynningu Írska ríkisútvarpsins RTE var það undirstrikað að „yfirgengilegt mannfall á Gaza sem ekki sér fyrir endann á“, sé ástæða þess að RTE sniðgangi keppnina.Frá því að vopnahléi var komið á í október í fyrra hefur Ís