Ísland mun draga úr samfélagslosun um 21 prósent árið 2030 miðað við árið 2005 og er því 20 prósentustigum frá settu markmiði um 41 prósents samdrátt. Þetta kemur fram í spá Umhverfis- og orkustofnunar um framreiknaða losun en stofnunin gaf út bráðabirgðatölur um losun gróðurhúsalofttegunda árið 2025 í dag. Ísland hefur hingað til dregið úr samfélagslosun um 10 prósent miðað...