Enginn fundur hjá ríkissáttasemjara en viðræður í gangi

Viðsemjendur í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair eiga í samtölum sín í milli til að reyna að koma í veg fyrir verkfall en formlegur fundur er ekki í gangi. Þetta segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í viðtali við fréttastofu.Verkfall flugvirkja hefst á miðnætti ef ekki semst fyrir þann tíma. Verkfallið er ótímabundið og stendur því þar til samningar nást eða því er aflýst eða það stöðvað með öðrum hætti.Flugvirkjar greindu í gær frá því að þeir hefðu boðist til að fresta verkfallinu um viku til að búa til svigrúm í kjaradeilunni. Icelandair hafnaði því boði og sagði skaðann þegar orðinn, frestun yrði aðeins til að framlengja tímabil óvissu og auka tjón sem flugfélagið hefði þegar orðið fyrir.
Enginn fundur hjá ríkissáttasemjara en viðræður í gangi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd