Unnið er að nýrri aðgerðaáætlun í skóla- og menntamálum í leik- og grunnskólum í Reykjavík. Nýr meirihluti hefur boðað til samráðsfundar með fjölbreyttum fulltrúum heimilis og skóla. Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar, segir ekki hafa verið nógu skýran fókus á skóla- og menntamálum í Reykjavík og að nýr meirihluti ætli að breyta því. Það sé stórsókn og hún viti að það sé stórt orð en þau ætli að reyna að standa undir því.