Sænskur frambjóðandi sakaður um kosningamisferli

Yfirvöld í Svíþjóð rannsaka meint kosningamisferli í nýafstöðnum þingkosningum. Í frétt Dagens Industri segir að málið snúist um kosningabaráttu Mohameds Abdukardir Ali, sem náði kjöri á þing fyrir Vinstriflokkinn. Ali er þó ekki grunaður um lögbrot, segir SVT.Samkvæmt kæru sem lögreglu barst 1. september var kjósendum ekið á kjörstað í Borlänge í Dölunum í Mið-Svíþjóð og þeim afhentir kjörseðlar þar sem búið var að merkja við Ali. Dagens Industri segir að meðal annars hafi fólki verið boðið fé fyrir að kjósa Ali.Sérstök deild saksóknara sem rannsakar spillingarbrot hefur tekið málið til rannsóknar.Ali segist sjálfur vera hneykslaður á málinu og neitar allri aðild.„Þetta er algjörlega rangt. Ég hef ekki gert þetta. Ég þekki lögin,“ sagði Ali við SVT og bætti við að hann hefði ekki enn rætt
Sænskur frambjóðandi sakaður um kosningamisferli

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd